Um okkur

Félag íslenskra bókaútgefenda

Barónsstíg 5

101 Reykjavík

Sími 511-8020, fax 511-5020,

netfang: This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it

 

Félag íslenskra bókaútgefenda er samtök starfandi bókaútgefenda á Íslandi og var stofnað 1889.

Félagið gætir sameiginlegra hagsmuna bókaútgefenda og vinnur að því að efla bókmenningu og bóklestur á Íslandi og auka áhuga barna og unglinga á bóklestri. Félagið gefur árlega út ritið Bókatíðindi með kynningu á helstu útgáfubókum ársins sem útgefendur telja eiga erindi við almenning. Bókatíðindi koma út í nóvember og er dreift á hvert heimili í landinu.

Félagið veitir Íslensku bókmenntaverðlaunin árlega og eru tíu bækur tilnefndar til verðlaunanna í desember, fimm í flokki fagurbókmennta og fimm í flokki fræðirita og bóka almenns efnis. Verðlaunin sjálf, fyrir fagurbókmenntir annarsvegar og hinsvegar fræðirit eða bók almenns efnis, eru veitt eigi síðar en 15. febrúar næsta ár. Þau nema nú 750 þúsund krónum hvor, auk þess sem verðlaunahafi fær fagran verðlaunagrip.

Bókamarkaður félagsins er haldinn árlega í febrúar-mars.

Félag íslenskra bókaútgefenda hefur samstarf við önnur félagasamtök sem vinna að bókmenningu í landinu með skrifum, prentun, kynningu, dreifingu, sölu og umfjöllun. Þetta eru félög höfunda, prentiðnaðar, bókavarða, bóksala og gagnrýnenda, sem flest standa að Bókasambandi Íslands.