Styrkir


Styrkir til bókaútgáfu á Íslandi eru veittir úr Þýðingarsjóði og úr Menningarsjóði einu sinni á ári. Þýðingarstyrkjum Norrænu ráðherranefndarinnar er úthlutað tvisvar á ári og erlendir útgefendur geta sótt um styrki til þýðinga á íslenskum bókmenntum til Bókmenntakynningarsjóðs sem einnig er úthlutað tvisvar á ári. Menningaráætlun Evrópusambandsins veitir styrki til samstarfsverkefna evrópskra stofnana, fyrirtækja og félaga á menningarsviði, þ.m.t. til þýðinga á bókmenntum.


Styrkir Þýðingarsjóðs

Þýðingarsjóður veitir útgefendum fjárstuðning til útgáfu vandaðra erlendra bókmennta á íslensku, skáldverka jafnt sem viðurkenndra fræðirita, og skal nota féð til þýðingarlauna. Styrkir eru veittir einu sinni á ári, umsóknarfrestur er auglýstur í dagblöðum en hefur oftast verið 1.mars. Umsóknareyðublöð fást í afgreiðslu menntamálaráðuneytisins og einnig má nálgast þau á vef ráðuneytisins: www.mrn.stjr.is

Skilyrði fyrir styrkveitingu úr Þýðingarsjóði eru:
1) Verkið sé þýtt úr frummáli sé þess kostur.
2) Upplag sé að jafnaði ekki undir 1000 eintökum.
3) Gerð og frágangur fullnægi almennum gæðakröfum.
4) Eðlileg dreifing sé tryggð.
5) Útgáfudagur sé ákveðinn



Styrkir Menningarsjóðs
Styrkur úr Menningarsjóði er veittur útgefendum og/eða höfundum fræðirita, handbóka, orðabóka og menningarsögulegra rita, auk þess sem styðja má aðra skylda starfsemi. Styrkir úr Menningarsjóði eru veittir einu sinni á ári , umsóknarfrestur er auglýstur í dagblöðum og er venjulega 1. mars. Umsóknareyðublöð fást í afgreisðlu menntamálaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, og einnig má nálgast þau á vefnum www.mmedia.is/menningarsj

Skilyrði fyrir styrkveitingu úr Menningarsjóði eru:
1) Handrit eða handritsdrög fylgi umsókn.
2) Verkið samræmist markmiði sjóðsins að mati sjóðsstjórnar.
3) Heimildaskrár og/eða vandaðar hjálparskrár skulu fylgja fræðiritum.
4) Samkomulag um útgáfu liggi fyrir.
5) Gerð og frágangur verka fullnægi almennum gæðakröfum.
6) Upplag sé að jafnaði eigi minna en 750 eintök.
7) Eðlileg dreifing sé tryggð.
8) Útgáfutími sé ákveðinn.



NORDBOK - Þýðingarstyrkir Norrænu ráðherranefndarinnar

Styrkir NORDBOK, bókmennta- og bókasafnsnefndar Norrænu ráðherranefndarinnar, eru veittir til þýðinga og útgáfu á bókmenntum sem þýddar eru úr einu Norðurlandamáli á annað. Sækja má um þessa styrki tvisvar á ári, 1.apríl og 1.október. Umsóknir sendast til nefndarinnar: NORDBOK, Biblioteksstyrelsen; Attn.Konsulent Lise Vandborg; Nyhavn 31 E; DK-1051 K¢benhavn K, Danmark. Þar fást ennfremur nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð sem einnig má nálgast á heimsíðu nefndarinnar: www.norden.   (tilskuddsordninger/skjemaer)
Umsóknareyðublöð berast einnig á skrifstofu Félags íslenskra bókaútgefenda og má ljósrita eftir þörfum.



Styrkir til þýðinga á íslenskum bókum til útgáfu erlendis
Bok.is / Bókmenntakynningarsjóður / Fund for the Promotion of Icelandic Literature veitir styrki til að þýða íslenskar síðari tíma fagurbókmenntir á önnur tungumál. Þýðingarstyrkur er aðeins veittur ef fyrir liggur samningur við erlendan útgefanda en í sumum tilvikum er veittur styrkur til að þýða kafla/kynningarefni fyrir hið erlenda forlag. Erlendir útgefendur og þýðendur geta sótt um styrki beint til sjóðsins. Þýðingarstyrkir eru veittir tvisvar á ári: 15. apríl og 15. nóvember, en umsóknir á þar til gerðum eyðublöðum þurfa að hafa borist 31.mars og 31. október. Styrkurinn fæst greiddur eftir að eintak af viðkomandi verki hefur borist Bok.is.
Bok.is/ Bókmenntakynningarsjóður er til húsa að Túngötu 14, 2. hæð.
Sími: 552 8500, GSM: 861 0408, Fax: 552 8570, netfang: This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it


ARIANE - Menningaráætlun Evrópusambandsins

Upplýsingar má finna hér:

http://eacea.ec.europa.eu/culture/programme/documents/2010/may/EN.pdf