Upplýsingar
Bókmenntaverðlaunin
Innskráning
Innskráðir félagar
|
Skráning í Bókatíðindi 2011 Félag íslenskra bókaútgefenda mun að venju gefa út í nóvember kynningarrit um íslenskar bækur, Bókatíðindi, sem dreift er á öll heimili á landinu, auk þess sem bókaverslanir nota ritið við sölustarfsemi sína og bókasöfn við upplýsingar og innkaup. Útgáfudagur er fyrirhugaður í 2. viku nóvember 2011 og fer ritið þá strax í dreifingu. Hér á eftir fylgja nánari upplýsingar og leiðbeiningar um kynningar og auglýsingar í Bókatíðindum 2011. BÓKATÍÐINDI 2011 Eins og áður verða EINGÖNGU birtar kynningar á nýjum bókum í Bókatíðindum, þ.e. bókum með nýju ISBN númeri. Að öðru leyti verða Bókatíðindi 2011 með sama sniði og fyrri ár, brotið 16,5x24 cm, fjórir dálkar á síðu, dálkbreidd 3,4 cm. Bókaflokkar eru fyrirhugaðir 10 og verða þessir: Barna- og unglingabækur,( verða í 3 flokkum; íslenskar, þýddar, hljóðbækur) Íslensk Skáldverk, (verða í 3 flokkum; íslensk, Auk kynningartexta og myndar af kápu (eða höfundi) birtist nafn bókar, höfundar, þýðanda þar sem við á, og útgefanda og greint er frá blaðsíðufjölda, leiðbeinandi útsöluverði (með vsk.) og ISBN númeri. Ekki er skylt að hafa mynd eða útsöluverð en hin atriðin verða að birtast. Bókum innan hvers flokks verður raðað í einfalda stafrófsröð titla. Vegna útgefendaskrár aftast er beðið um nafn útgáfu, heimilsfang, póstfang, síma- og faxnúmer hjá þeim sem hafa, sömuleiðis netfang þeirra sem það hafa. Skilyrði fyrir birtingu bókakynninga og auglýsinga er að útgefendur séu skuldlausir við félagið. Verð á kynningum og auglýsingum fást á skrifstofu. Skilafrestir: Kynningartextar og bókakápur þurfa að berast í allra síðasta lagi miðviku-daginn 19. okt. nk. Panta þarf auglýsingapláss sem fyrst og eigi síðar en 6. október við og síðan þarf að skila auglýsingunum tilbúnum til prentunar í allra síðasta lagi 20. október. ÞESSAR DAGSETNINGAR ERU EINDAGAR! |