|
Verk- og ráðningarsamningur fyrir útgefendur |
|
Lögmaður félagsins hefur gengið frá þrem rammasamningum fyrir bókaútgefendur til að nota sem grundvöll þegar samið er við verktaka eða starfsmenn, sem ráðnir eru tímabundið til ákveðinna verka fyrir útgefanda inni á forlagi eða utan þess:
Ráðning ljósmyndara til tiltekinna verkefna Ráðning starfsmanns tímabundið til vinnu við tiltekið verk inni á forlagi Ráðning verktaka fyrir frumsamið verk þar sem hugmyndin verður til hjá útgáfunni sjálfri
Í samningunum er gert ráð fyrir nákvæmum atriðum um starf og vinnutilhögun og tekið tillit til framtíðarhagsmuna varðandi höfundar- og útgáfurétt, rafræna vistun og útgáfu og fleira. Samningarnir eru trúnaðarmál en útgefendur í Félagi íslenskra bókaútgefenda geta fengið þá á rafrænu formi og notað og lagað að eigin þörfum eftir atvikum. Þeir sem vilja fá þessa rammasamninga geta haft samband við skrifstofu félagsins og fengið þá senda í tölvupósti, á disklingi eða ljósritaða.
|