Reglugerð um verðlaun

 

Íslensku bókmenntaverðlaunin

sem forseti Íslands afhendir

stofnuð af Félagi íslenskra bókaútgefenda í tilefni af 100 ára afmæli þess 12.jan.1989.

 

I.  Tilgangur

1. grein

Tilgangur Íslensku bókmenntaverðlaunanna er að styrkja stöðu frumsaminna íslenskra bóka, efla vandaða bókaútgáfu, auka umfjöllun um bókmenntir í fjölmiðlum og hvetja almenna lesendur til umræðna um bókmenntir.

 

II.  Val bóka til samkeppni

2. grein

Hver sá sem gefur út bækur á þess kost að tilnefna þær af útgáfubókum sínum sem hann óskar að komi til álita, samkvæmt nánari reglum sem stofnendur verðlaunanna setja samhliða þessari reglugerð. Við tilnefningu skal tekið fram hvort um er að ræða

 

A          Frumsamin íslensk skáldverk, laust mál eða ljóð, fyrir alla aldursflokka.

 

B          Önnur íslensk ritverk, fræðirit, frásagnir, handbækur og hver þau verk sem að jafnaði teljast ekki skáldverk eða fagurbókmenntir.

 

III.  Val athyglisverðustu bóka ársins

3. grein

Um mánaðamót nóvember/desember verða valdar tíu athyglisverðustu bækur ársins,

fimm úr hvorum flokki. Sex dómarar, þrír fyrir hvorn flokk, annast valið. Félag

íslenskra bókaútgefenda skipar valinkunna menn til starfans, og tilnefnir tvo þeirra

sem formenn nefndanna.

 

Eigi skulu sömu menn starfa sem dómarar lengur en þrjú ár samfleytt og líða

skulu a.m.k. tvö ár frá dómarastörfum áður en menn koma til þeirra á ný.

 

IV.  Val verðlaunabóka ársins

4. grein

Fyrir 5. desember skal skipuð  þriggja manna dómnefnd og sitja í henni  formenn

nefndanna  ásamt fulltrúa sem tilnefndur er af embætti forseta Íslands.

Dómnefndin velur eina bók úr hvorum flokki til verðlauna sem forseti Íslands

afhendir við hátíðlega athöfn eigi síðar en 15. febrúar.

 

5. grein

Verðlaunafjár er aflað samkvæmt stofnskrá settri af Félagi íslenskra bókaútgefenda.

 

Samkv. stjórnarsamþykkt 8. júní 1993

Reglur frá 1990 með áorðnum breytingum 1991, 1993, 2000 og 2002.