Bókamessa í Reykjavík um helgina Print Netfang
Skrifað af Administrator   
Wednesday, 09 November 2011 10:26

BÓKAMESSA Í BÓKMENNTABORG
Glóðheitar bækur og fjölbreytt dagskrá í Ráðhúsi Reykjavíkur og Iðnó 12. og 13. nóvember

Helgina 12. – 13. nóvember standa Félag íslenskra bókaútgefenda og Reykjavík Bókmenntaborg UNESCO fyrir bókamessu í  Ráðhúsi Reykjavíkur og Iðnó. Í fyrsta sinn er haldin glæsileg bókamessa hérlendis þar sem íslenskir útgefendur kynna nýja titla sem koma út nú fyrir jólin. Um leið verður fjölbreytt dagskrá fyrir fólk á öllum aldri í Iðnó báða dagana, bæði í stóra og litla sal. Einnig verður dagskrá í kaffihúsi Ráðhússins, Öndinni, og sögubíll Borgarbókasafnsins,  Æringi, verður á svæðinu.

Vinsamlegast hlaðið niður þessu skjali fyrir frekari upplýsingar: Bókamessa í Bókmenntaborg