|
Skrifað af Administrator
|
|
Tuesday, 27 April 2010 10:46 |
|
Birtur hefur verið nýr metsölulisti fyrir tímabilið 12. apríl - 24. apríl. Kannski skyldi engan undra að nýútkomin skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis skuli þar trjóna á toppnum en að hún skuli þjóta beinustu leið á toppinn á uppsafnaða listanum vekur óneitanlega athygli. Kannski ætti þetta ekki að koma neinum á óvart sé tekið mið af þeirri gríðarlegu umfjöllun sem skýrslan hefur fengið.
Við hjá Félagi íslenskra bókaútgefenda fögnum því að þjóðin skuli enn lesa og lesa mikið - sama hvert efnið er. Nýjustu listana má sjá með því að smella HÉR!!! En á sama stað má einnig sjá alla gömlu listana í tímaröð.
|