Vika bókarinnar sett Print Netfang
Skrifað af Administrator   
Wednesday, 21 April 2010 19:52

Ráðherra setur Viku bókarinnarVika bókarinnar var sett miðvikudaginn 21. apríl í samkomusal Austurbæjarskólans. Það var Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra sem setti vikuna. Hún las jafnframt úr einni uppáhalds barnabókinni sinni fyrir nemendur úr 5. bekk skólans.

 

Félag íslenskra bókaútgefenda stendur að Viku bókarinnar, sem hefst 21. apríl og stendur til 27. apríl. Alþjóðlegur dagur bókarinnar er föstudaginn 23. apríl.

 

Ávísun á lestur hefur verið borin í hús. Þetta er í fimmta sinn sem heimili landsins fá senda 1.000 króna ávísun sem hægt er að nota sem greiðslumiðil þegar keyptar eru bækur sem kosta að minnsta kosti 3500 krónur.

 

Með Ávísun á lestur, var borinn út bæklingur frá IBBY á Íslandi, þar sem fjallað er um mikilvægi lestrarhvatningar. Félag íslenskra bókaútgefenda beinir sjónum að stöðu skólabókasafna grunnskólanna í Viku bókarinnar í ár. Skólabókasöfnin eru hornsteinar lestrarhvatningar íslenskra barna en þau hafa orðið hart fyrir barðinu á niðurskurði að undanförnu. Um leið og Félag íslenskra bókaútgefenda skorar á sveitarfélög og skólayfirvöld að hyggja að mikilvægi skólabókasafna fyrir  lestrarmenningu á Íslandi, hefur það stofnað Skólasafnasjóð sem

Ráðherra las úr uppáhalds  barnabókinni sinni

ætlað er að úthluta styrkjum til safnanna til bókakaupa. Eitt hundrað krónur af andvirði hverrar ávísunar renna í sjóðinn.

 

Markmiðið með átaki Félags íslenskra bókaútgefenda er þríþætt:

  1. Að hvetja til bókakaupa.
  2. Að hvetja til aukins lestrar, sér í lagi meðal barna og unglinga.
  3. Að veita landsmönnum tækifæri til að styðja við skólabókasöfnin, en 100 krónur af andvirði hverra bókakaupa, renna til Skólasafnasjóðs.

 

Frekari upplýsingar um Viku bókarinnar veitir:

Edda Jónsdóttir, kynningarstjóri Viku Bókarinnar 2010 í síma 899 2009.