|
AFHENDING ÍSLENSKU BÓKMENNTAVERÐLAUNANNA 2011 |
|
|
|
Skrifað af Administrator
|
|
Wednesday, 25 January 2012 21:04 |
|
Forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti í dag, miðvikudaginn 25. janúar 2012, Íslensku bókmenntaverðlaunin 2011 við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Verðlaunin hlaut í flokki fagurbókmennta Guðrún Eva Mínervudóttir fyrir skáldsöguna Allt með kossi vekur, gefin út af JPV útgáfu, og í flokki fræðirita og bóka almenns efnis Páll Björnsson sagnfræðingur fyrir bókina Jón forseti allur? Táknmyndir þjóðhetju frá andláti til samtíðar sem Sögufélagið gefur út. Þetta er í tuttugusta og þriðja skiptið sem verðlaunin eru afhent en fyrst var tilnefnt til þeirra árið 1989.
Smellið hér til að hlaða niður fréttatilkynningu |
|
|
Bókamarkaður Perlunni 2012 |
|
|
|
Skrifað af Benedikt Kristjánsson
|
|
Monday, 23 January 2012 20:05 |
|
Bókamarkaðurinn í Perlunni verður með svipuðu sniði og síðustu ár. Tekið verður á móti bókum frá fyrirtækjum og einstaklingum. Tilkynna skal til skrifstofu Félags íslenskra bókaútgefenda, ef viðkomandi útgefandi vill koma með bækur til sölu á markaðinum.
Þann 21. febrúar 2012 tökum við á móti bókum. Markaðurinn verður opinn kl. 10.00 til 18.00 alla daga frá 23. febrúar til sunnudags 11. mars. Útgefendur sjá sjálfir um að setja upp bækur og fylla á, í samstarfi við starfsfólk.
Tilkynningar og fyrirspurnir sendist á tölvupóstfang:
This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it
|
|
Íslensku bókmenntaverðlaunin 2011 – afhent á Bessastöðum miðvikudaginn 25. janúar |
|
|
|
Skrifað af Administrator
|
|
Monday, 23 January 2012 16:38 |
Íslensku bókmenntaverðlaunin 2011 verða afhent við hátíðlega athöfn af forseta Íslands á Bessastöðum miðvikudaginn 25. janúar kl. 16.00.
Þá mun forseti Íslands tilkynna val lokadómnefndar á einum verðlaunahafa úr hvorum flokki Íslensku bókmenntaverðlaunanna, flokki fræðibóka og almenns efnis og flokki fagurbókmennta.
Formaður lokadómnefndar, skipaður af forseta Íslands er Þorsteinn Gunnarsson en með honum sitja í lokadómnefnd formenn tilnefninganefndanna tveggja, Árni Matthíasson og Þorgerður Jennýjardóttir Einarsdóttir.
Verðlaunaféð eru kr. 1.000.000 í hvorum flokki.
Smelltu hér til að hlaða niður fréttatilkynningunni með þessari frétt |
|
Gleðileg Jól |
|
|
|
Skrifað af Administrator
|
|
Friday, 23 December 2011 12:58 |
|

|
|
|
|
|
|
|
Page 1 of 13 |